sunnudagur, apríl 22, 2007

Félagsfræði er mér eigi eðlislæg

Yfirlýst virkni þessa bloggpósts er að sýna gamansaman vinkil á lífi skarpyrts nema sem virðist taka lífinu og öllu sem því tilheyrir með vænni slettu af gamansemi, er hann situr, sposkur eins og Móna Lísa, í stól og fitnar. Dulda virknin er að mér leiðist og ég er fastur við tölvuna tilfinningalega og hef ekkert annað að gera nema að læra. Skaðvirkni þessa er augljós, en þessi póstur er liður í heimsyfirráðum eins og allt sem ég geri og segi.

Héðan: